Jæja, þá er komin smá reynsla á lífið í Bandaríkjunum. Við mættum á svæðið í kringum kvöldmat á mánudagskvöldið. Afgreiðslan í tollinum tók u.þ.b. 2 klukkutíma og svo var haldið af stað til Brewster þar sem við búum næstu vikurnar hjá Sigtryggi og Línu sem eru alveg einstök hjón. Stelpurnar elska að vera hérna, geta hlaupið um allt, hér eru kanínur, íkornar og dádýr á vappi. Þetta er eins og í bíómynd.
Þar sem ástandið á húsnæði í nágrenni við NY er fjölbreytt tókum við þann pól í hæðina að skoða fleiri bæi en bara Rye - svona fyrir aukið úrval. Við fórum því á rúntinn seinnipartinn á þriðjudag til að líta í kringum okkur. Í gær skoðuðum við svo bæinn Pleasantville - sem er afar huggulegur lítill bær og ekki spillir nafnið. Það væri svolítið flott að búa á Main Street, Pleasantville. Ég er svo mikil umbúðakona. Við skoðuðum tvö hús þar og OOJJJJJ. Viðbjóðsleg lykt, eldgömul og hálf ónýt hús en samt kostar yfir 2500 dollara að leigja þau á mánuði. Algjör bilun að mínu mati. Fasteignamiðlarinn ætlar að skoða meira fyrir okkur í nágrenninu svo við förum aftur á þessar slóðir síðar.
Í dag er stefnan sett á Greenwitch í Conneticut sem innan við klukkutíma frá Manhattan og kíkja aftur til Rye og nágrenni. Spennandi að sjá hvað við höfum upp úr þeirri ferð. Það eru nokkrar nýjar myndir inni á Flickr síðunni (smellið bara á lógóið hér til hægri). Ef einhvern langar að spjalla þá eru símarnir okkar hér fyrir neðan.
Heimasími hjá Sigtryggi og Línu: 001-845-278-7448
Gemsinn okkar: 001-203-297-4040
3 ummæli:
Gott að vita að þið eruð komin út og ferðin gekk vel. Æðislegar myndir!!Skil vel að stelpunum líði vel.Gangi ykkur vel að finna húsnæði. Mun fylgjast spennt með Linnezævintýrinu í USA.
Bestu kveðjur, Solla í saumó.
Mikið verður þetta skemmtilegt ævintýri Kristín mín. Gangi ykkur vel í húsnæðisleit. Það kemur eitthvað gott út úr því, engin spurning.
Það var ekkert logo til að sjá myndir þegar ég fór inn á síðuna???
Bestu kveðjur,
Gurrý
Gaman að heyra frá ykkur stelpur. Ef það vantar logo fyrir myndasíðuna þegar þið lesið póstinn er hægt að komast inn á myndasafnið með því að smella á myndina sem er í einhverri færslunni. Myndirnar eru allar úr myndasafninu og flytja ykkur beint þangað þegar smellt er á þær. Kv. Kgb
Skrifa ummæli