laugardagur, 9. maí 2009

Ég ákvað að reyna að hressa aðeins uppá bloggið mitt. Hef ekki náð að laga það eins og ég vil hafa það en ég held ótrauð áfram að reyna. Ég vil helst setja upp allskonar smáatriði sem sýna hvað ég er klár, og ekki skemmir ef ég læri einhverntímann að flytja vídeóin okkar yfir á tölvuna. Þá gæti ég t.d. sýnt ykkur hana Þórkötlu þar sem hún spilar á tónleikum með strengjasveit 4. og 5. bekkjar í Cos Cob skóla. Kannski set ég bara fréttaskot frá Sveini þarna inn í staðinn. Hver veit! Tillögur eru vel þegnar.

Engin ummæli: