mánudagur, 11. maí 2009
Þetta ætlar ekki að vera jafn vel heppnuð lýtaaðgerð og ég vonaðist eftir. Fjárans myndaborðinn er að stríða mér. Þetta lítur allt svo vel út á skjánum mínum en þegar ég skoða síðuna í tölvunni hans Sveins þá er myndborðinn nokkrum ljósárum fyrir neðan titilinn á síðunni. Svo næ ég ekki að losna við útlensku orðin "Readmore" og "View my complete profile". Ég finn ekki þessar færslur í HTML málinu. Ég hefði viljað koma þessum frösum yfir á íslensku. Svo held ég að ég vilji bara eina mynd efst fyrst myndaborðinn gerir sig ekki nógu vel þarna efst á síðunni. Tekið er á móti ráðleggingum frá heimavinnandi húsmæðrum og öðrum tölvusnillingum alla daga á skrifstofutíma. Og munið, ekki vera feimin...
laugardagur, 9. maí 2009
Ég ákvað að reyna að hressa aðeins uppá bloggið mitt. Hef ekki náð að laga það eins og ég vil hafa það en ég held ótrauð áfram að reyna. Ég vil helst setja upp allskonar smáatriði sem sýna hvað ég er klár, og ekki skemmir ef ég læri einhverntímann að flytja vídeóin okkar yfir á tölvuna. Þá gæti ég t.d. sýnt ykkur hana Þórkötlu þar sem hún spilar á tónleikum með strengjasveit 4. og 5. bekkjar í Cos Cob skóla. Kannski set ég bara fréttaskot frá Sveini þarna inn í staðinn. Hver veit! Tillögur eru vel þegnar.
mánudagur, 2. mars 2009
sunnudagur, 1. febrúar 2009
Í grein í New York Times í dag talar Thomas L. Friedman um efnahagsástandið í heiminum. Hann virðist vera staddur í Davos í Sviss þar sem stjórnmálamenn og auðmenn eins og Björgólfur Thor koma reglulega saman til að ræða strauma og stefnur í heimsmálunum. Friedman talar um að það sé ekki til nein töfralausn á efnahagskreppunni í heiminum en Kaninn virðist halda að kreppunni ljúki á næstu dögum. Hann talar einnig um bankahrunið á Íslandi og stjórnarhrunið í kjölfarið, og veltir því fyrir sér hvort kreppan eigi eftir að valda upplausn í stjórnmálum á fleiri stöðum. Í framhaldinu vitnar Friedman í brandara sem gengur manna á milli í Davos:
"What is the capital of Iceland? Answer: $25"
Þetta finnst mér góður brandari.
"What is the capital of Iceland? Answer: $25"
Þetta finnst mér góður brandari.
þriðjudagur, 13. janúar 2009
Í fyrsta skipti síðan ég flutti að heiman er ég með bílskúr, og elska hreinlega elska bílskúrinn minn. Kannski ekki á sama hátt og Svein en elska hann engu að síður. Í sumar og haust fyllti ég hann af drasli sem ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við. Núna bakka ég bílnum mínum út á morgnana, þarf ekkert að skafa, fara út í kuldann eða neitt. Þetta er sönn ást!
sunnudagur, 11. janúar 2009
föstudagur, 9. janúar 2009
Þetta er hún Dýrleif mín að fara með rulluna um það af hverju Leifur Eiríksson var merkilegur. Jú, gaurinn fann Ameríku. Salurinn var fullur af 2. bekkingum (72 talsins) og foreldum þeirra. Allir krakkarnir í 2. bekk fóru með álíka rullur en flutningurinn var enda punkturinn á rannsóknarverkefni þeirra á einhverri frægri, sögulegri persónu. Því miður var myndavélin eitthvað að stríða mér, bæði lýsingin og zoomið svo að ekki sést hún vel þessi elska en hún stóð sig afar vel, eins og allir krakkarnir í hennar árgangi.
